Kim Kardashian fékk loksins draum sinn uppfylltan og er búin að landa forsíðu Vogue, ekki einsömul þó því að Kanye fékk að vera með líka!
Tískuheimurinn og Hollywood gersamlega flippaði út þegar forsíðan var frumsýnd, einhverjir hótuðu að hætta í áskrift, aðrir að sögðu að þeir myndu aldrei kaupa blaðið aftur á meðan ennþá fleiri settu fram þá spurningu hvað Anna Wintour (ritstjóri Vogue) og aðrir starfsmenn hafi verið að hugsa?
Anna gaf frá sér yfirlýsingu vegna alls þessa og í henni kemur meðal annars fram að hún hafi ekki verið ein um þessa ákvörðun og að starfsfólk blaðsins hafi verið sammála um það að Kim og Kanye væru fullkomin á forsíðuna.
Önnu finnst forsíðan æðisleg, hún sé bæði heillandi og snerti við manni og að Kanye hafi alls ekki grátbeðið hana um að hafa sig og Kim á forsíðunni eins og margir vilja meina. Á forsíðunni stendur að Kim og Kanye séu það par sem sé mest talað og fjallað um í heiminum í dag og það sé nokkuð góð ástæða til þess að setja fólk á forsíðuna.
Persónulega finnst mér alls ekkert varið í þessa forsíðu. Kjóllinn á Kim er alls ekki smart og förðunin, ekki láta mig byrja á henni! Hún er hræðileg! Í fyrsta lagi er lýsingin eða förðunin í tómu tjóni og Kim lítur út fyrir að vera með yfirvaraskegg! Síðan er “smokey” augnförðunin ekki smart og passar ekki við kjólinn en eins og ég segi þá er þetta mitt mat. Þegar ég sá forsíðuna þá var þetta það fyrsta sem ég tók eftir. Kim er vanalega óaðfinnanlega förðuð en þarna passar förðunin ekki við tilefnið.
Hvað finnst þér? Eiga Kim og Kanye skilið að vera á forsíðu helsta tískutímariti heimsins eða hvað? Miðað við viðbrögð margra á Facebook, Instagram og Twitter þá lítur út fyrir að Anna og hennar starfsfólk hafi gert stór mistök og helstu tískuspekingar heimsins skilja ekkert í þessari ákvörðun.
Hér að neðan er síðan myndband frá Vogue sem var tekið þegar myndaþáttur parsins ásamt Nori var tekinn upp.
[youtube]https://www.youtube.com/watch?v=8t0qmhnuEpg[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig