Kim Kardashian á von á sér eftir nokkra daga og má ekki fljúga vegna meðgöngunnar en Kanye West, kærasti hennar, ákvað samt sem áður að halda upp á afmælið sitt í New York.
Kanye varð 36 ára um helgina og Kim sendi honum hjartnæma kveðju á Instagram þar sem hún sagði að hann væri stóra ástin í lífi hennar. Besti vinurinn Jonathan og mágur hennar Scott mættu hinsvegar fyrir hennar “hönd” í afmælið.
Margir velta því fyrir sér hvers vegna Kanye ákvað að halda upp á afmælið sitt í New York en ekki í Los Angeles þar sem Kim á heima. Flestir sem eiga kærustu sem er komin jafn langt á leið og Kim myndu ólmir vilja vera nálægt sinni heittelskuðu á merkisdögum eins og afmælum en það virðist ekki hafa verið fyrsta hugsun Kanye þennan daginn.
Meðal annara afmælisgesta voru hjónin Beyoncé og Jay-Z en þeir Kanye eru mjög góðir vinir og fóru meira að segja saman í tónleikaferð. Kim hefur mikið reynt að koma sér í mjúkinn hjá Beyoncé án árangurs en Kanye hefur sagt það opinberlega að hann eiginlega fyrirlíti raunveruleikaþætti Kardashian fjölskyldunnar og skilji ekkert í þessari vitleysu. Margir nánir honum vilja einnig meina að Kim sé að skemma ímynd hans en þau hafa ekki sést mikið saman á meðgöngu Kim.
Kanye vill einnig búa í París þar sem hann er ekki hrifinn af ágangi papparassanna en Kim vinnur mikið í Bandaríkjunum þó sérstaklega LA og getur ekki hugsað sér að flytja þaðan. Kanye vill að hún komi til Parísar og gerist hönnuður, hann vill nefninlega að hún njóti sín á öðrum sviðum en að vera “bara” raunveruleikastjarna.
Úff hvað ætli að gerist næst? Greyið Kim hefur haft nóg á sinni könnu alla meðgönguna og síðan neitar kæró að vera hjá henni á lokasprettinum! Skamm skamm Kanye!!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig