Kim Kardashian ætlaði ekki að láta sjá sig fyrr en hún væri búin að missa öll aukakílóin sem komu með meðgöngunni og að hún væri ,,papparazzi-tilbúin”.
Nú hafa hins vegar náðst myndir af bæði Kim og Kanye West, barnsföður hennar, að erindast í Los Angeles á miðvikudaginn síðastliðinn.
Hvort Kim finnist hún vera nægilega flott til að vera fest á filmu eru ekki víst en fyrirsætan lítur þó glæsilega út og fer móðurhlutverkið henni vel.
Raunveruleikastjarnan átti dóttur sína North West fyrir um átta vikum og hefur ekki sést opinberlega síðan. Enn hafa ekki birst myndir af barninu en Kim og Kanye eru sögð vera ólm í að komast á forsíðu Vogue með North litlu. Ekki er víst að ritstjóri bandaríska Vogue, Anna Wintour, taki vel í þá hugmynd enda er hún sögð hafa óbeit á Kardashian-fjölskyldunni.
Kim er sögð hafa fengið sér einkaþjálfara sem æfir með henni fimm daga vikunnar og þar að auki er hún á ströngu matarræði. Kim er harðákveðin í því að ná sama formi og hún var í áður en hún varð ólétt en stjarnan hefur nú þegar misst tæp 15 kg.
Þrátt fyrir að vera lítið til höfð og með hugann við ungabarnið sitt lítur Kim óaðfinnalega út enda náttúrulega falleg mannvera.
Það verður spennandi að sjá loks myndir af litlu North West og spurning er hvort hún líkist meira Kim eða Kanye?
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.