Kim Kardashian var flutt á sjúkrahús eftir að hún hneig niður í flugvél þegar hún var á leiðinni heim frá París fyrir skemmstu.
Margar sögusagnir hafa verið á kreiki í kringum spítalaferðina og gengu jafnvel nokkrir svo langt að segja að hún hefði misst fóstrið. Kim og barninu heilsast þó vel en hún hefur ekki stoppað undanfarnar vikur og hefur hoppað á milli landa eins og enginn sé morgundagurinn.
Kim var á leiðinni heim frá París en hún er einnig nýlega komin heim frá Nígeríu. Hávær orðrómur hefur verið um það að skilnaðardeila hennar og Kris sé ástæðan fyrir því að Kim er orðin örmagna andlega.
Kris er brjálaður yfir öllum þessum ásöknum og segja vinir hans að það sé ekki honum að kenna að fröken Kardashian sé búin að vera að flakka heimshorna á milli og drekkja sér í vinnu en þeir félagarnir eru sannfærðir um það að einhver úr herbúðum Kim hafi komið þessum orðrómi af stað til þess að skyggja á það að Kim getur hreinlega ekki slakað á. Það er líka talað um að hún sjái ekkert nema peninga og sé orðin ansi gráðug. Talsmenn Kris segja einnig að kannski ætti Kim að hvíla sig á raunveruleikaþáttum í bili og fara að hugsa um barnið sem hún ber undir belti.
Kris vill ekki veita Kim skilnað heldur vill hann fá ógildingu á hjónabandi þeirra þar sem að hann segir að það hafi verið byggt á lygi.
Kim harðneitar því og vill fá skilnað en hún segist hafa verið afar ástfangin af Kris og hjónabandið þeirra hafi ekki verið lygi né leið til að græða peninga.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig