Kim Kardashian gerir allt sem hún getur til þess að vernda einkalíf sitt þessa dagana en hún hefur ekki enn birt mynd af litlu stúlkunni sinni North West.
Kim hefur ekki verið sú feimnasta þegar kemur að því að sýna frá einhverju í lífi sínu en hún og Kanye vilja halda North litlu frá öllu fjölmiðla og raunveruleikafári en Kim var mikið gagnrýnd á meðgöngunni og nýtur þess núna að fá ró og næði með litlu North.
Kim ákvað að prufa traust vina sinna með því að senda þeim myndir af North West en myndirnar voru í raun og veru ekki af henni heldur einhverju öðru barni. Þær voru sendar til sex nánustu vina hennar en hún ætlaði að sjá hvort einhver af þeim myndi selja myndina til tímarits eða setja á netið. Vinirnir eru þó greinilega sannir vinir því enginn af þeim birti myndirnar sem þau fengu sendar.
Skrýtin aðferð til að athuga hvort að vinir manns séu traustir eða meikar þetta einhvern sens?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig