Í nýjustu seríu af Keeping Up With The Kardashians segir Kim að hún vilji gera eitthvað öfgafullt núna eftir að hún er búin að eiga, jafnvel sitja aftur fyrir í Playboy.
Kim finnst hún vera að missa kúlið vegna allra aukakílóanna og líður alls ekki vel. Núna eru um þrír mánuðir síðan North litla fæddist og Kim er orðin ljóshærð aftur en hún hefur skartað þessum hárstíl nokkrum sinnum áður. Hún hefur greinilega ákveðið að breyta bara um hárlit í staðinn fyrir Playboy en hver veit… kannski birtast myndir af bombunni í tímaritinu þegar hún er komin aftur í form? Kim kom síðast nakin fram í tímaritinu árið 2007 og hefur oft látið hafa eftir sér að hún sjái eftir þeirri ákvörðun.
Kim og Kanye hafa alveg ákveðna skoðun á því í hvaða lit af fatnaði North á að klæðast og hún fær ekki að fara í bleikt því aðeins þrír litir koma til greina, svartur, hvítur og kremaður. Herbergi North er einnig svart og hvítt og navy blár læðist einnig með þar inni. Litla daman fékk að sjálfsögðu flatskjá í herbergið sitt enda ekki seinna vænna en að byrja að láta hana horfa á raunveruleikaþátt mömmunnar.
Fataskápur litlu North er heldur ekki af verri endanum en hann inniheldur meðal annars fatnað frá Fendi, Bonpoint, Lanvin, sérhannaðir Giuseppe Zanotti barnaskór eru þar, Dolce & Gabbana og Hermès svo eitthvað sé nefnt, ætli að hún sé með dýrari fataskáp en Suri Cruise? Það kæmi ekki á óvart.
Það er greinilegt að Kim ætlar að dekra litlu dömuna í drasl og hún verður örugglega lítil tískudrottning eins og mamma sín og pabbi!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig