Já það er óhætt að segja að Kim Kardashian sé nútímaprinsessa en hún og kærasti hennar rapparinn Kanye West hafa fjárfest í glæsilegri lúxusvillu í Los Angeles.
Kim hefur gert það gott undanfarið hvort sem það er í kringum raunveruleikaþætti hennar, snyrtivörusamninga, fatasamninga eða mætt á viðburði og fengið fúlgu fjár fyrir það eitt að mæta.
Húsið inniheldur meðal annars :
- -Vínkjallara
- -Bókasafn
- -Risastórt eldhús með “morgunverðarstofu”
- -Leikherbergi/barnaherbergi
- -Sér herbergi fyrir kokk/þjón/þernu
- -Sér herbergi fyrir barnapíu
- -Bíósal
- -Keilusal
- -Hárgreiðslu og snyrtistofu
- -Baðherbergi með spa
- Og að lokum LYFTU!
Parið fjárfesti í þessu húsnæði stuttu eftir að þau tilkynntu að þau ættu von á sínu fyrsta barni en Kim hefur þegar selt glæsihúsið sitt sem hún keypti fyrir nokkrum árum síðan.
Það ætti ekki að fara illa um litlu fjölskylduna í húsinu en neðri hæðin er 4500 fermetrar að stærð
2007 hvað?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig