Já Kim Kardashian hefur fengið sinn skerf af gagnrýni á meðgöngunni en hún er mögulega ekki að hugsa nógu vel um sjálfa sig þessa dagana.
Kim sást vappinu í Los Angeles í háhæluðum skóm sem voru afar þröngir um lappirnar og það er greinilegt að Kim er komin með mikinn bjúg sem getur komið þegar maður hvílir sig ekki nógu mikið á meðgöngunni.
Að fá bjúg á meðan á meðgöngunni stendur er mjög óþægilegt og þegar ég segi mjög þá meina ég MJÖG (ég tala af reynslu). Allt verður erfitt, það er erfitt að labba, klæða sig og bara hreinlega sinna öllum daglegum verkum, maður þreytist fljótt og þegar bjúgurinn byrjar að myndast er manni ráðlagt að hvíla sig, það er best og drekka nóg vatn.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Kim er í of þröngum skóm því hún Twittaði mynd af sér um daginn eftir rauða dregilinn og hún var ennþá í skónum þegar hún var komin úr þeim!
Kim hefur verið út um allt alla meðgönguna, flogið mikið á milli landa, verið dugleg í ræktinni og mætt á rauða dregilinn við hvert tækifæri sem gefst. Ég er alls ekki að segja að hún eigi að loka sig inni og bíða þar til að krílið fæðist en það væri gott fyrir hana að slaka aðeins á og jafnvel klæða sig í þægilegri skófatnað sem fer betur með fæturnar á henni.
En hey Kim er Kim, ekki hóað í hana og gefið henni ráð héðan úr Grindavík en hvar er momagerinn Kris núna? Hún hefur gengið með sex börn og ætti að hafa smá reynslu af megöngu og ýmsum kvillum á meðan á henni stendur!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig