Raunveruleikastjarnan fagra sem fæddi litla dóttur fyrir skemmstu er övæntingarfullt að reyna að koma sér aftur í fyrra líkamsform ef marka má slúðurpressuna vestra.
Hún þyngdist talsvert á meðgöngunni og var gagnrýnd fyrir vikið, bæði af barnsföður sínum og fjölmiðlum. Þetta hafði þau áhrif á konuna að hún æfir núna daglega með þjálfara og er á ströngu mataræði til að geta aftur orðið kynbomban Kim. Þó eru ekki nema tæpar 2 vikur frá því að litla daman, sem fengið hefur nafnið North West, kom í heiminn.
Kim ætlar sér að vera komin í topp form þegar hún birtist sjónum almennings að nýju en hvorki hún né sú nýfædda hafa sést opinberlega eftir að barnið kom í heiminn.
Að sögn In Touch tímaritsins var Kim með þráhyggju fyrir þyngdinni þegar hún lá á fæðingarstofunni og talaði vart um annað en líkama sinn. Eftir að fæðingunni var lokið spurði hún systur sínar strax hvort hún væri ekki orðin eitthvað minni um sig.
“Hún er með það á heilanum að grenna sig og það á að gerast hratt. Hún ætlar sér að vera komin í bikiní fyrir lok sumars og er handviss um að hún geti losað sig við amk 15 kg á einum mánuði.
Þó að Kim hafi samt æft allann tímann með stjörnuþjálfaranum Tracy Anderson er hún hrædd um að komast aldrei aftur í sama formið.
Fólkið í kringum hana reynir að sögn blaðsins að fá hana til að slaka svolítið á en daman er staðráðin í að verða aftur bomba og þar eiga áhrif kærastans að koma sterk inn.
“Þegar hún byrjaði að bæta á sig varð hann heldur fúll þar sem hann var búin að sjá hana fyrir sér í mjög flottum meðgöngufatnaði. Hann er ósáttur við þessa þyngdaraukningu hjá henni og langar að hún nái þessu af sér sem fyrst”.
Hresst par? Eða ekki…
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.