Kim Kardashian gengur með sitt fyrsta barn og það er sorglegt frá því að segja að slúðurmiðlar hafa alls ekki farið fögrum orðum um þyngdaraukningu hennar.
Við sem höfum gengið í gegnum það að vera óléttar vitum að það er erfitt að sjá líkamann breytast mikið og oftar en ekki er bara erfitt að vera í fötum sem manni líður vel í yfir höfuð.
Kim er þekkt fyrir það að vera alltaf klædd í merkjavöru, í mjög þröngum fötum, háum hælum, með hárið tip top og mikið máluð. Það virðist vera önnur saga núna því oftar en ekki hefur hún sést í sandölum og fötum sem eru víð og henni líður vel í en þannig finnst manni einmitt oft gott að klæða sig þegar maður gengur með barn því það er ekki þægilegt að vera í fatnaði sem þrengir að, þó sérstaklega á magasvæðinu.
Kim hefur þurft að sæta mikilli og eiginlega ósanngjarnri gagnrýni á meðgöngu sinni. Henni hefur verið líkt við hval, hún hefur verið sökuð um ofát, það hefur verið sagt að hún sé að reyna að fitna svona mikið til þess að fá megrunarsamning að meðgöngunni lokinni og klæðnaður hennar hefur verið gagnrýndur mjög mikið.
Ég veit ekki með þig en þegar ég var ólétt hefði ég svo sannarlega ekki viljað hafa papparassa á eftir mér út um allt takandi myndir af mér og hverju skrefi sem ég tók. Hvað þá hafa myndir af mér á öllum slúðurmiðlum en Kim er með þykkan skráp og veit að henni er fylgt hvert fótmál.
Hér að neðan má sjá myndir af Kim á meðgöngunni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig