Kim Kardashian þáir að losna við raunveruleikaþátta og kynlífsmyndbandastimpilinn eftir að hún byrjaði með Kanye West og eignaðist dótturina.
Bombam er víst með leikkonuna Söruh Jessicu Parker á heilanum, elskar stílinn hennar og allt sem hún gerir. Hún hefur meira að segja gengið svo langt að reka gamla fjölmiðlafulltrúann sinn og næla sér í fjölmiðlafulltrúa Söruh Jessicu!
Kim finnst Sarah vera með mikinn klassa og vill ólm komast á sama stað og leikkonan en ekki vera með raunveruleika Kardashian stimpilinn á sér og bóndi hennar, Kanye, hvetur hana óspart til að hætta í raunveruleikaþáttunum og byrja frekar að snúa sér að tísku og fatahönnun. Gera það að sínu aðal starfi.
Þegar Sarah var spurð út í þráhyggju Kim á sér svaraði hún að sér þætti það pínu “creepy”. Hún gaf Kim það heilræði að skella sér í leiklistartíma og skapa eitthvað sjálf – frá sínu eigin hjarta og alls ekki treysta alltaf á útlitið.
Kim er orðin svo heilluð af leikkonunni að hún íhugar jafnvel að næla í hársnyrtinn, förðunarfræðinginn og stílistann frá Söruh en hingað til hefur Kim treyst á eiginmanninn þegar kemur að því að gera hana fína og stílisera fyrir opinberar skemmtanir.
Kim ætti að sannarlega að reyna að gera eitthvað sjálf í staðinn fyrir að reyna að líkjast öðrum, hún ætlar sér augljóslega að koma til baka með hvelli eftir meðgöngu og barnsburð. Klikkað eða hvað?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig