Kim Kardashian hefur aldeilis verið á milli tannanna á fólki á meðgöngu sinni og margir eiga ekki til orð yfir klæðaburði hennar.
Raunveruleikastjarnan hefur verið í háum hælum sem þrengja mikið að fótum hennar og maður finnur eiginlega til þegar maður sér lappirnar á henni nánast springa í skónum út af bjúgi!
Kim viðurkennir þó fúslega að hún sé ekki með mikið tískuvit þegar kemur að meðgöngufatnaði og það sé mjög erfitt að fara úr þröngu kjólunum og háu hælunum þegar maður er vanur að velja á milli hátískukjóla dags daglega.
Nú er stutt eftir af meðgöngu Kim en síðustu vikurnar eru oft erfiðastar þegar kemur að því að klæða sig og finna einhver föt. Þá er eins og maður sé Gúlíver í Putalandi að reyna að troða sér í spjarir sem eru bara allt, allt of litlar.
Kim biður einnig um hjálp frá stílista sem sérhæfir sig í meðgöngutísku en að hennar sögn þarfnast hún virkilega hjálpar núna til þess að vera smart!!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig