Við sem höfum farið í gegnum meðgöngu vitum að það eru ekki bara regnbogar og rósir sem fylgja því að bera barn undir belti.
Hin nýbakaða móðir Kim Kardashian hefur heldur betur fengið að finna fyrir því en í mars á þessu ári kom upp tilfelli þar sem Kim hélt að hún væri að missa barnið sitt.
Kim fékk mikla verki og var flutt með hraði á sjúkrahús þar sem kom í ljós að hún hafði verið að ofgera sér en allt var í lagi með barnið. Þetta kemur fram í þætti af “Keeping up with the Kardashians” en Kim er svo “heppin” að það eru ekki bara papparassarnir sem fylgja henni hvert fótmál heldur eru myndavélarnar fyrir sjónvarpsþáttinn aldrei langt undan. Kim hefur aldrei farið leynt með það að hana langi í barn en hún hefur örugglega ekki átt von á því að meðgangan og öll athyglin í kringum hana tæki svona mikið á.
Þegar Kim var á spítalanum lýsti hún því yfir að hún ætli aldrei að verða ólétt aftur þar sem hún geti ekki hugsað sér að ganga í gegnum meðgöngu aftur. Hún grætur líka svo mikið að það er varla hægt að lýsa því en meðgangan hefur verið undir smásjá frá því að Kim tilkynnti hana.
Nýjustu fregnir herma hinsvegar að Kanye hafi haldið framhjá Kim á meðan hún var ólétt með ónafngreindri fyrirsætu og Kanye ákvað einnig að stinga af til Sviss til að vera með gigg á lokasprettinum og eyðir alls ekki miklum tíma með Kim. OG til að toppa þetta allt saman þá flutti Kim til mömmu sinnar en mamma hennar hefur sagt það opinberlega að það séu einhverjir brestir í sambandi Kim og Kanye – Drama drama!!
Sannkallaður séntílmaður eða þannig, ætli að það verði eitthvað samband hjá þeim eftir að litla daman þeirra er komin í heiminn? Hann hefur örugglega engan tíma.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig