Kim Kardashian er orðin móðir! Lítil dama kom í heiminn í morgun en Kim fór í keisaraskurð.
Kim var komin með sýkingu sem kallaði á keisaraskurð en talið er að botnlanginn hafi verið sýktur og vildu læknarnir því ekki taka neina áhættu.
Kim átti stúkuna á Cedars-Sinai Medical Center spítalanum og heilsast þeim mæðgum vel en litla stúlkan er samt sem áður í hitakassa vegna þess að hún mánuði kom fyrr en áætlað var í heiminn. Kanye var viðstaddur fæðinguna en hann var í Sviss fyrr í vikunni að skemmta fólki og kynna nýju plötuna sína.
Þá er langþráður draumur Kim orðinn að veruleika og við óskum henni auðvitað innilega til hamingju og vonum að sú kveðja komist til skila! 😉
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig