Ekki eru allir hrifnir af Kardashian genginu þrátt fyrir mikla velgengni þeirra í raunveruleikaþáttum sínum ásamt ýmsum öðrum verkefnum og því fékk stílistinn Nicola Formichetti að kynnast.
Nicola er stílisti söngkonunnar Lady Gaga en hann hefur unnið með söngkonunni síðan árið 2009 að hinum ýmsu verkefnum svo sem myndböndum og tónleikaferðum. Nicola stíliseraði einnig myndaþátt með Kim Kardashian fyrir myndatöku ELLE tímaritsins.
Myndirnar af Kim eru allar með sinn sérstaka stíl og Kim var alsæl en jafnframt pínu stressuð að fá að vinna með Nicola. Kim segir að hún elski að láta “breyta” sér fyrir myndatökur og treysti hugsjón þess sem er að stílisera myndatökuna.
Hún segir að þegar hún vinni með einhverjum sem hún virkilega virðir þá treysti hún viðkomandi ennþá betur, jafnvel þó að hún sé á báðum áttum með eitthvað þá treystir hún því samt að viðkomandi stílisti eða leikstjóri viti hvað hún/hann sé að gera og að allt muni líta vel út að lokum, henni finnist gaman að fara aðeins út fyrir rammann.
Kim er ekki þekkt fyrir að vera með mikið fylgdarlið nema þá fjölskylduna sína og það kom Nicola verulega á óvart að Kim kom bara ein í myndatökuna.
Kim segir að henni finnist best að ferðast ein nema að fjölskyldan sé með í för og núna sé hún komin með smá ógeð á afskiptasemi famelíunnar og því hafi hún ákveðið að koma ein. Henni líður best einni þegar hún er í myndatökum sem tengjast bara henni því þannig kemst hún í réttan karakter fyrir tökuna.
Nicola lenti í töluverðum vandræðum fyrir myndatökuna en hátískuhúsin voru alls ekki viljug að lána honum föt þegar þau vissu hvaða stjörnu ætti að fara að mynda. Hann segir einnig að bransinn sé einfaldlega svona og þó þú eigir slatta af seðlum þá færðu samt sem áður ekki alltaf þínu framgengt.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig