OK! tímaritið segir Khloe Kardashian ólétta.
Tímaritið sagði Khloe einnig ólétta árið 2011. Það var lygi.
Tímaritið sagði Khloe einnig ólétta árið 2013. Það var líka lygi.
OK! býr til mikið af sögum af Khloe, fjölskyldu hennar, öðrum konum, helling af öðru.
Og núna heldur tímaritið því fram að Khloe sé ólétt og eigi von á barninum með French Montana. Það er lygi líka.
Heimildarmaður náinn Kardashian-fjölskyldunni segir hana ekki eiga von á barni. Hvaða rugl er þetta eiginlega?
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.