Khloe Kardashian hefur hagað sér eins og algjör díva við tökur á nýja raunveruleikaþættinum sínum.
Khloe hefur verið að mæta of seint í tökur og er síkvartandi yfir nýjum nágrönnum sínum þar sem hún tekur upp Kourtney and Khloe Take The Hamptons.
Hin þrjátíu ára gamla raunveruleikastjarna kom upptökuliðinu á þáttunum á óvart með því að mæta of seint trekk í trekk og er alltaf kvartandi yfir staðsetningunni þar sem þættirnir eru teknir upp.
„Khloe hefur verið að mæta of seint og hún kemur aldrei með neina útskýringu á því hvers vegna hún er að mæta svona seint,“ sagði heimildarmaður við RadarOnline.
„Upptökuliðið veit ekki hvað það á að gera af sér vegna þess að það getur ekki gert neitt fyrr en Khloe mætir á svæðið. Þetta er týpísk Khloe sem eitt sinn var vön því að mæta mjög snemma í tökur.“
„Hún kvartar yfir því að vera í Hamptons og skilur ekki hvers vegna nágrannar þáttana eru pirraðir út í það að hún sé komin á svæðið.”
“Hún hagar sér eins og díva og segir að fólkið í Hamptons ætti að vera þakklátt fyrir það að hún sé í bænum þeirra. Það glæði viðskiptin.“
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.