Khloe Kardashian var byrjuð að gruna eiginmann sinn Lamar Odom um framhjáhald fyrir löngu síðan.
Khloe réð einkaspæjara fyrir um ári síðan en þá var hana farið að gruna að ekki væri allt með felldu hjá eiginmanninum og lét elta hann. Hún fékk spæjarann til að taka myndir af honum og fann hin ýmsu skilaboð á símanum hans sem sanna að hann hafi haldið framhjá. Og Lamar hélt ekki framhjá Khloe aðeins með einni stúlku heldur FIMM dömum takk fyrir!
Khloe er eðlilega afar sár yfir þessu öllu saman en hún hefur verið yfir sig ástfangin af Lamar frá því þau hittust fyrst.
Khloe gerði þetta ekki einungis til að fá að vita hið sanna heldur er klausa í hjúskaparsáttmála þeirra um að ef Lamar heldur framhjá þá þarf hann að borga Khloe feita summu af seðlum ef þau skilja.
Lamar dvelur enn í íbúð sinni í Los Angeles á meðan Khloe býr í stóru villunni þeirra. Hún hefur ekki enn tekið af sér giftingarhringinn og eru þau að reyna að leysa málin sín á milli.
Tíminn verður að leiða í ljós hvernig fer hjá skötuhjúunum og stóra spurningin er hvort Khloe muni fyrirgefa Lamar fyrir allt þetta, dóp, framhjáhald og lygar. Hvað finnst þér? Eru þetta of mikil svik eða ætti hún að reyna að standa með sínum manni?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig