Fyrir aðdáendur Keeping up with the Kardashians eru framhjáhaldsfréttir Lamar og Khloe frekar mikið sjokk þar sem þau virðast afar hamingjusöm í þáttunum.
Lamar á að hafa haldið framhjá Khloe með stúlku að nafni Jennifer Richardson. Samkvæmt slúðurpressunni vestanhafs byrjaði þetta allt saman í fyrra. Lamar á að hafa hitt Jennifer oft og aðallega þegar hann var að keppa utanbæjar en hann spilar körfubolta með Los Angeles Clippers í NBA deildinni.
Khloe og Lamar hafa reynt að verða ólétt nánast frá því að þau hittust en ekkert virðist ganga í þeim málum og hafa þessir erfiðleikar sett strik í reikning hjónabands þeirra en þau sem hafa glímt við ófrjósemi vita að slíkt tekur mikið á sambandið. Khloe leyfir Lamar ekki að sofa í hjónaherbergi þeirra og á einum tímapunkti henti hún honum út úr húsi þeirra þar sem hún hafði fengið nóg.
Lamar missti sig líka við papparassa í síðustu viku. Hann henti myndavélum þeirra í götuna og kallaði þá öllum illum nöfnum en stillti sér þó upp með aðdáendum eftir öll herlegheitin og Khloe Twittaði: “Shout out for my hubby for posing with a fan” eða hrós fyrir eiginmanninn minn fyrir að stilla sér upp með aðdáanda.
Ekki er nóg að Lamar á að hafa haldið við Jennifer heldur segir slúðurpressan að hann hafi einnig farið í þríleik með henni og vinkonu hennar í desember síðastliðnum.
Við skulum vona að þetta sé ekkert nema orðrómur en hjónin hafa ekki sést opinberlega saman í meira en mánuð og þykir það ýta undir hjónabandsörðugleika þeirra.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig