Khloé Kardashian sveif um á bleiku skýi fyrr í vikunni þegar Lamar lofaði öllu fögru og sagðist vera hættur að drekka og dópa.
Nú hefur annað komið á daginn. Lamar djammar og djúsar eins og enginn sé morgundagurinn án þess að Khloé viti af. Körfuboltakappinn fór í Hrekkjavökupartý í síðustu viku og varð víst ansi drukkinn, samkvæmt sameiginlegum vini þeirra hjóna sem greindi Khloé frá hegðun Lamar. Fleiri urðu vitni af því hvernig hann lét og staðfestu það við Khloé.
Khloé var alsæl með loforð Lamars um að snúa blaðinu við og segja skilið við djammið en eftir að Khloé heyrði af partýstandi eiginmannsins ,,tvítaði” hún eftirfarandi; “Know you can only trust yourself. I control my destiny” eða “Þú getur aðeins treyst sjálfum þér, ég stjórna eigin örlögum”.
Khloé og Lamar tala saman í síma á hverjum degi en samband þeirra er orðið meira í líkingu við systkinasamband. Henni er annt um Lamar en veit að hann verður að leita sér hjálpar og að hún geti ekki neytt hann til að gera eitthvað sem að hann vill ekki gera.
Khloé hefur svo sannarlega kynnst því hversu erfitt það er að vera í sambandi með einstakling sem á við áfengis – og/eða eiturlyfjafíkn að stríða.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig