Khloe Kardashian og Lamar Odom hafa aldrei farið leynt með það að þau langi í barn og Khloe hefur alltaf sagt að hún muni eignast barn þegar Guð er tilbúinn að setja hana í foreldrahlutverkið.
Á meðan að Khloe hefur verið í stanslausri baráttu við ófrjósemi sína þá hefur Kourtney systir hennar eignast tvö börn og núna er Kim einnig ólétt.
Mikill orðrómur hefur verið á kreiki um að Khloe sé ekkert nema öfundin út í systur sínar en það gæti ekki verið fjarri sannleikanum og hún elskar litlu frændsystkinin sín út af lífinu og gerir allt fyrir þau.
Slúðurmiðlarnir hafa einnig verið duglegir að smjatta um það að hjónabandið þeirra standi á brauðfótum en það er alls ekki satt og Lamar stendur þétt við bakið á konunni sinni í þessum erfiðleikum og þau eru nánari en nokkru sinni fyrr.
Khloe ætlar að fara í frjósemismeðferð og á meðan á henni stendur þá fá myndavélarnar að fylgja henni hvert fótmál – en ekki hvað? Khloe vill vekja athygli á þessu en það eru margar konur sem stríða við ófrjósemi og Khloe var mjög hissa þegar hún komst að því hversu margar konur glíma í raun og veru við þetta vandamál.
Khloe veit að hennar tími mun koma og að hún verði mamma einhvern daginn, það muni bara taka hana lengri tíma en aðrar konur.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig