Mig langar til að sýna ykkur flotta förðun í anda Kylie Jenner. Fyrir þá sem ekki vita er Kylie hálfsystir Kardashian systranna. Kylie og alsystir hennar Kendall eru báðar flottar fyrirsætur og hafa verið áberandi upp á síðkastið fyrir flottan stíl.
Aðalsmerki Kylie í förðuninni er náttúruleg augnförðun, eyeliner, áberandi augnhár og mattar bleik- brúnrauðar varir.
Ég fékk Eygló Myrru ofurskvísu til að vera módel fyrir mig í þessa förðun.
[youtube]http://youtu.be/wSAN-XnoVhE?list=UUD5ldHPZ_TqYRiez4JLl0wA[/youtube]
Annika Vignisdóttir er förðunarfræðingur og nemi í MSc markaðsfræði í HR. Hún, sem er fædd í meyjarmerkinu, elskar gjörsamlega allt sem tengist förðun, húðumhirðu og snyrtivörum en hefur einnig mjög gaman af dansi, tísku, hreyfingu og fólki með svartan húmor. Annika lifir samkvæmt þeirri hugmyndafræði að gera sem mest af því sem er skemmtilegt. Ef þú hefur fyrirspurnir varðandi förðun eða samstarf er þér velkomið að hafa samband við hana í gegnum mail: annikavignis@gmail.com