Hér kemur kennslumyndband frá förðunarmeistaranum Lisu Eldridge þar sem bleiki liturinn er allsráðandi…
Í myndbandinu kennir hún okkur hvernig framkalla á útlitið sem hún gaf Kylie Minogue fyrir forsíðu og myndaþátt sem birtist í breska ELLE fyrir skemmstu. Útlitið einkennist af bleikum lit á vörum, kinnum og augum.
Það getur verið vandasamt að nota bleika og rauða liti á augun eins og Lisa tekur fram í myndbandinu en hún lumar á nokkrum góðum ráðum. Til dæmis leggur hún mikið út á að húðin sé gallalaus og áferðafalleg áður en gripið er til bleika litsins.
Í myndbandinu blandar Lisa saman vörum á viðráðanlegu verði og vörum sem eru í dýrari kantinum en Lisa tekur fram að áhorfendur geti að sjálfsögðu notað hvaða vörur sem er svo lengi sem fólk á þær til eða hefur efni á þeim.
Rómantískt og fallegt lúkk fyrir hversdagsleg tilefni.
_______________________________________________________________________________
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=fwQDPaWNDR8&feature=player_embedded[/youtube]Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.