Náttúruleg förðun er það sem við köllum einfalda og létta förðun. Hún flokkast oftast undir dagförðun vegna þess að hún er látlaus og dregur fram fegurð húðarinnar. Fallegur ljómi er lykilatriði.
Náttúruleg förðun hentar vel í öll tilefni og þá líka í t.d. árshátíðir þegar kjóllinn er því meira glamúrus.
Það er alltaf best að byrja á rakakremi, það tryggir að nægur raki sé í húðinni. Þá sest meikið betur á húðina og það kemur fallegri áferð á hana.
Hægt er að kaupa bæði primer og meik sem láta húðina fá þann ljóma sem einkennir þessa förðun. Mér finnst vörurnar sem eru í Lumi línunni frá L’Oréal einstaklega fallegar til að draga hann fram.
Augnförðunin er einföld.
Oftast eru notaðir 2-3 augnskuggar, þá einn ljós sanseraður yfir allt augnlokið og fallegast er að hafa brúntóna lit í glóbuslínunni.
Fallegt er að setja ennþá ljósari sanseraðan augnskugga fyrir neðan augabrún og í augnkrók.
Það lyftir augabrúninni og augun virka opnari og bjartari. Einnig er flott að setja hvítan eyeliner í votlínuna, það opnar augun enn meira.
Flott er að setja annaðhvort blautan eyeliner eða blýant á augnlok.
Þá kemur vel út að setja blýant og blanda hann örlítið út svo að það verði ekki eins hörð lína.
Síðan fylgir maskari auðvitað á eftir og ljóst gloss er sett á varirnar. Gloss sem mér finnst mjög fallegt í þessa förðun og líka bara dags daglega er frá NYX og heitir Butter Gloss Créme Brulee.
Að lokum er ein vara sem er algjör möst í þessa förðun! Ég nota hana alltaf þegar ég farða og er ein af mínum uppáhalds vörum.
Hún heitir Wonder Powder og er frá Makeup Store.
Þetta er púður sem gefur húðinni einstaklega fallegan ljóma, situr létt á húðinni og gefur fallega áferð.
Það er líka flott að nota það eitt og sér, hægt er að setja það yfir allt andlitið eða bara á kinnbein til að draga þau fram.
Efst í greininni má sjá mynd af minni útgáfu af náttúrulegri förðun.
//www.facebook.com/svanhildurmakeup
Svanhildur Guðrún sporðdreki sem fæddist árið 1993, sama ár og Spice Girls urðu til. Hún er förðunarfræðingur, útskrifuð úr Reykjavik Makeup School með næst hæstu einkunn úr sínum bekk. Svanhildur hefur óþrjótandi áhuga á förðun og öllu sem henni við kemur, en líka á heilsu, hreyfingu, útivist og Friends. “Friends þáttur á dag kemur skapinu í lag,” er hennar mottó > facebook.com/svanhildurmakeup