Skærir litir geta verið ótrúlega fallegir og þeir fríska upp á andlitið. Með vorinu koma pastel- og neonlitir sterkt inn bæði í tísku og förðun og er um að gera að nota tækifærið og versla sér skæra augnskugga, varaliti og fatnað!
Leiðirnar til að notast við óhefðbundna liti eru endalausar, við sýndum myndband um daginn þar sem að Ásdís í M.A.C. kenndi okkur skemmtilega kvöldförðun með flottum litum og konur eins og Nicki Minaj og Katy Perry fara sínar eigin leiðir að því að kalla fram litagleði.
Það er sniðugt að nota bjarta liti á einn hluta andlits: augu, varir eða kinnar og leyfa hinum að vera frekar hlutlausum. Til er endalaust af skemmtilegum hugmyndum eins og….
- Smokey förðun með björtum litum. Sami litur settur á augnlok og undir augað, maskari og hlutlausar varir.
- Skær blýantur eða eyeliner við augnháralínu eða undir augað getur gert helling!
- Settlegur en litmikill gloss eins og Juicy Tubes fyrir þær sem vilja prófa en þora ekki alla leið.
- Varalitur í flottum og sumarlegum lit nær langt.
- Kinnalitir í öflugum bleikum- eða ferskjutónum eru að koma sterkt inn núna.
- Maskari í lit… afhverju ekki?
- Það má ekki gleyma hárinu… það er hægt að fá tímabundinn skæran lit til að seta í hárið.
Vertu óhrædd við að prófa nýja hluti og leyfa ímyndunaraflinu að njóta sín, hlutirnir þurfa ekki að vera of ýktir til að vera skemmtilegir!
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com