PJATTRÓFURNAR, EGILL OG TREVOR SORBIE kenna þér að gera fallegar hárgreiðslur sem einfalt er að kalla fram:
Í þessu myndbandi kennum við þér að skerpa á litnum og gefa hárinu aukna fyllingu og ‘volume’.
Díana varð mjög hrifin af því hvernig hárið fékk fallegan glans og skarpari dökkan lit með Beautiful Brunette sjampói og hárnæringu en hún er með sinn eigin náttúrulega lit í hárinu.
Egill notar bæði Beautiful Volume þurrsjampó og hársprey til að búa til meiri fyllingu í hárið en þurrsjampóið er alveg með því besta sem við vitum til að þykkja hárið og lyfta því upp. Þurrsjampóið frá Trevor Sorbie er líka nægilega létt til að nota í dökka rót og það ilmar sérlega vel.
Hérna sérðu hvernig þú færð þykkara og ‘fyllra’ hár með einföldum aðferðum :
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=vojQit4TSoA[/youtube]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.