Kendra Wilkinson hefur átt í viðræðum við skilnaðarlögmenn eftir að upp komst um framhjáhald eiginmanns hennar Hank Baskett.
“Kendra er búin að vera að tala við skilnaðarlögmann,” segir heimildarmaður við USweekly. “Henni er fyllsta alvara með að vilja skilja við hann en hún vill meta stöðuna áður en hún lætur til skarar skríða.”
Þessi fyrrum kærasta Hughs Hefner hefur haft um nóg að hugsa eftir að upp komst um framhjáhald Hanks með transgender fyrirsætunni Övu Sabrinu London.
Bara nýlega átti hún barn númer tvö með Hank, litlu dótturina Alijah en fyrir áttu þau soninn Hank JR.
Baskett virðist vera eitthvað í afneitun með þetta allt því hann er enn með giftingahringinn á sér og segir öllum sem heyra það vilja að hann þrái ekkert heitar en eða fá hana Kendru sína til baka.
Kendra virðist þó þurfa eitthvað sem sannfærir hana meira. “Hún er í mikilli sorg yfir þessum svikum og finnst hann hafa algerlega svikið sig.”
Þrátt fyrir allt heldur Kendra sínu striki enda er hún mikill nagli. Hún er með krakkana í fyrsta sæti og gerir það sem þarf að gera. Við Pjattrófur óskum henni að sjálfsögðu góðs gengis án Hanks.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.