Kendra Wilkinson er orðin móðir í annað sinn!
Aðeins nokkrum klukkutímum eftir að raunveruleikastjarnan og Playboy-gellan, Kendra Wilkinson, setti á Twitter:
„Það er komið að því“
…eignuðust hún og eiginmaður hennar til fimm ára, Hank Baskett, sitt annað barn rétt fyrir helgi, stúlku.
Samkvæmt heimildum hafði Kendra planað að taka upp fæðinguna fyrir raunveruleikaþáttinn sinn, WE TV, en að starfsmenn spítalans hafi ekki heimilað það.
Fyrir áttu þau hjónin Hank Baskett IV en hann fæddist árið 2009.
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.