Kendra Wilkinson var eitt sinn ein af kærustum Hugh Hefner og það er honum að þakka að hún komst á beinu brautina eftir vandræði með áfengi og eiturlyf.
Raunveruleikastjarnan var alveg á brúnninni þegar Hugh tók hana undir verndarvæng sinn en Kendra flutti á Playboy setrið og varð ein af þremur kærustum Hefs.
Kendra ber ennþá miklar tilfinningar til “Hef” og mun ávallt vera þakklát fyrir það sem hann gerði fyrir hana, þess vegna ber hún líka miklar haturstilfinningar til núverandi eiginkonu hans Crystal Harris en hún yfirgaf hann nokkrum dögum fyrir brúðkaup þeirra og skildi hann eftir gersamlega miður sín, parið tók seinna saman aftur og þau giftu sig í desember síðastliðnum.
Kendra var alveg tilbúin að drepa Crystal sagði hún í útvarpsviðtali á dögunum og var henni afar reið.
Kendra hefur aldrei farið leynt með það að hún er skapstór, hún segir nánast hvað sem er og er sjaldan ritskoðuð en hún hefur þó róast á undanförnum árum eftir að hún gifti sig og eignaðist barn með fyrrverandi NFL leikmanninum Hank Baskett. Kendra segir að margt fólk eigi ekki eftir að líta Crystal sömu augum aftur, því hún verður alltaf stúlkan sem særði Hef þrátt fyrir að þau séu gift núna.
Já, það er eins gott að gera frú Kendru ekki reiða! Fínt að vera bara í Grindavík.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig