Kendall (18) og Kylie (16) Jenner eru yngri systur Kardashian systranna og það er óhætt að segja að stóru systurnar ættu að fara að vara sig.
Systurnar eru forsíðustúlkur Marie Claire í Mexíkó og ég verð að segja að þær eru sjúklega flottar í myndaþætti blaðsins. Kendall er sjóðandi heit um þessar mundir en hún gekk á tískuvikunni í New York fyrir Marc Jacobs þar sem hún sló í gegn en gegnsæi bolurinn sem hún klæddist gæti hafa átt einhvern þátt í því.
Kylie hefur ekki verið eins mikið í sviðsljósinu og sú eldri, Jenner, og segir Kendall að sig hafi alltaf langað að verða fyrirsæta, hún sé þó mun feimnari en Kylie systir sín sem er alltaf með stóran vinahóp í kringum sig meðan Kendall finnst best að fá að vera bara ein í friði og ró en Kylie er fiðrildi sem elskar að vera með vinum sínum.
Systurnar eru mjög samrýmdar og hafa verið bestu vinkonur frá því þær voru litlar en Kendall segir þó að Kylie hafi farið hrikalega í taugarnar á sér þegar hún var yngri því hún elti hana bókstaflega um allt. Kylie tekur undir það, henni leið best með stóru systur sér við hlið.
Ég er nokkuð viss um að þær systur eigi eftir að ná langt í tískubransanum og munu örugglega reyna að forðast raunveruleikasjónvarp í framtíðinni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig