Systurnar Kylie og Kendall Jenner muna ekkert eftir lífi án þess að vera frægar en það er spurning hvernig frægð þær vilja í dag þegar allir vegir eru færir.
Stelpurnar hafa verið á skjánum í þáttunum um Kardashian fjölskylduna síðan þær voru 10 og 12 ára en hvorug man eftir tilverunni án þess að koma fram í sviðsljósinu.
Kylie, sem er 17 ára í dag segist ekkert muna eftir lífinu fyrir myndavélarnar.
“Meira að segja fyrir þættina, þegar við vorum fjögurra eða fimm ára, þá gengum við rauða dregilinn með pabba okkar (Bruce Jenner),” sagði Kendall í viðtali við tímaritið DuJour.
Nýlega kom fram í slúðurpressunni vestra að Kendall hafi verið ráðlagt að hætta að koma fram í þáttunum, ellegar gæti það komið niður á fyrirsætuferli hennar.
“Henni hefur verið ráðlagt þetta af vinum í tískubransanum því raunveruleikasjónvarp og hátíska fara ekki saman. Það gæti eyðilagt ferilinn.”
Kendall er þó samningsbundin og verður að klára síðustu seríuna en hún fékk þó að draga sig út úr því sem eru kallaðir ‘spin off’ þættir og hefur sagt pass við öllum hugmyndum um frekara raunveruleikasjónvarp. Vel gert Kendall. Þá er spurning hvað hin systirin gerir.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.