Kendall Jenner sýndi fótleggina upp yfir nafla þegar hún spásseraði niður rauða dregilinn á MuchMusic Video Awards í Toronto síðasta sunnudag.
Fyrirsætan, sem er aðeins átján ára, aðstoðaði yngri systur sína Kylie Jenner við kynningar og ákvað að hrista rækilega upp í áhorfendum með því að klæðast þessari flík sem á fáa sína líka. Kjóllinn er hannaður af Fausto Puglisi en klaufarnar í kjólnum ná alveg vel yfir mjaðmabein. Síðar um kvöldið skipti hún svo yfir heldur fágaðari og hefðbundnari flíkur. Hún stóðst þó ekki mátið á Instagram, birti mynd af sér í kjólnum og skrifaði: Til hvers að hafa eina klauf þegar þú getur haft tvær?!
Kendall er, líkt og fleiri fjölskyldumeðlimir Kardashian ættarinnar, ekki ófeimin við að sýna húð og hold. Nýlega var hún ber að ofan í Interview og á sýningu fyrir Marc Jacobs í febrúar var hún svo gott sem ber að ofan.
Hress stelpa – en hvað segir þú. Myndir þú klæðast svona kjól, t.d. á árshátíð? Ha? Humm…
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.