Raunveruleikastjarnan Kendall Jenner hefur náð mikilli athygli sem fyrirsæta síðustu misserin en nú síðast vann hún fyrir Karl Lagerfeld og Chanel.
Kendall er litla systir þeirra Kim, Khloe og Kourtney Kardashian en þær Kyle, sem er yngsta systirin, eru nú á góðri leið með að skyggja á þær stóru sem mörgum finnst hafa farið full geyst í fjölmiðlum.
Litlu systurnar hafa klassa sem margir vilja meina að Kim og kó skorti en þær eru miklir unnendur hátískunnar og munu eflaust ná langt í þeim bransa enda með fyrirtaks tengslanet ef svo má að orði komast.
Sýndar voru flíkurnar fyrir haust/vetur 2014-15 og ekki ómerkari dömur en Cara Delvigne voru með Kendall í sýningunni sem var mjög nýstárleg, en hún fór fram í stórri matvöruverslun.
Fyrr á árinu sýndi Kendall m.a. fyrir Marc Jacobs og Givenchy en menn eru á einu máli um að hún eigi framtíðina fyrir sér í þessum flókna og erfiða bransa.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.