Hin gullfallega ‘Kardashian’ systir, Kendall Jenner, sýndi sýnar bestu hliðar í tímaritinu Interview þar sem hún kemur fram ber að ofan.
Þetta er reyndar ekki í fyrsta sinn sem stúlkan kemur svo gott sem nakin fram, hún gekk fyrir framan hundruðir áhorfenda á sýningu fyrir Marc Jacobs í febrúar s.l. en smátt og smátt hefur hún klifrað upp metorðastigann sem fyrirsæta og segja má að hún sé komin þangað sem hún þarf að komast.
Hún er reyndar ekki sú fyrsta af systrunum sem berar holdið því Kim fór jú úr öllu fyrir tímaritið W og Khloé beraði sig í herferð fyrir dýravinina í PETA sem berjast m.a. gegn fólki sem gengur í pelsum.
Í tímaritinu talaði Kendall jafnframt um pabba sinn og hvað hún er mikill aðdáandi hans. Hún segir líka að hann hafi hjálpað sér að komast áfram í lífinu. “Pabbi er mér allt. Hann var alltaf með bilaðar ræður yfir okkur Kylie þegar við vorum að vaxa úr grasi, allskonar hvatningar; Þið eigið að hafa stóra drauma, leggja hart að ykkur (Dream big – Work hard). Foreldrar okkar ólu okkur upp í að verða vinnualkar. Ég kann virkilega vel að meta það.”
Klassapía sem við eigum eflaust eftir að sjá mikið af á næstu misserum. Það er erfitt að fá nóg af þessu fólki.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.