Mér hefur þótt gaman að fylgjast með umbreytingunni á Kelly Osbourne að undanförnu.
Daman hefur tekið sig í gegn svo um munar og hugsar þvílíkt um mataræðið að hún er komin með geit út í garð og ræktar sitt eigið grænmeti.
Fyrir ekki svo löngu síðan var Kelly svona þybbinn budda sem brúkaði sig, dópaði, drakk og var dónaleg. Núna er hún gerbreytt og lítur út eins og unga útgáfan af mömmu sinni en er líka fáguð, fín og flott en samt með blátt pönk í blóðinu.
Kelly er algjör fatafíkill og hér dregur hún út eftirlætis flíkur sínar. Sumar eru í svo miklu uppáhaldi að hún þorir ekki einu sinni að fara í þær…
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.