Rifrildi Lady Gaga og Kelly Osbourne hefur staðið yfir síðan árið 2009 og það lítur út fyrir að það sé lítil von um sættir á næstunni.
Lady Gaga kom fram í breska X-Factor en Sharon Osbourne, móðir Kelly, er dómari í þættinum. Allir voru á nálum vegna komu Lady Gaga, sérstaklega eftir að Sharon lét ýmislegt flakka um Gaga í ævisögu sinni og kallaði hana meðal annars hræsnara.
Engin leiðindi urðu þó á milli þeirra Sharon og Lady Gaga. Þær föðmuðust meira að segja, stilltu sér upp og létu eins og sannir fagmenn í myndatöku eftir þáttinn. Gaga kom þar að auki með köku handa Kelly sem á stóð “Til hamingju með afmælið Kelly” sem hún bað Sharon að færa Kelly.
Kelly var ekki sátt með þennan gjörning og setti mynd af kökunni á Twitter ásamt því að “hashtagga” við myndina #Eatmyshit og #Hypocricy (Éttuskítinnminn og Hræsni).
Kelly fannst einnig hallærislegt að Gaga skyldi nota mömmu sína til þess að koma kökunni til sín og sagði að Gaga hefði alveg eins getað sent hana sjálf.
Síðar bætti Kelly við á Twitter: “Mér finnst eftirréttir góðir en kýs frekar sannleikann”.
Ó boy! Lady Gaga hefur ekki enn svarað þessum ummælum Kelly og hvað ætli litlu skrímslin hennar Gaga geri núna? Síðast hótuðu þau Kelly lífláti!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig