Uppáhaldið okkar hún Kelly Osbourne birti mynd af trúlofunarhringnum sínum á Instagram og Twitter í gær.
Daman skellti sér í neglur með pabba sínum Ozzy Osbourne (sem er frekar svalt) á naglastofu í Los Angeles. Hún fékk sér mjög smart silfurglimmer lakk á spíssaðar neglurnar sem voru sumar skreyttar með svörtum krossi. Mikið fallegri er þó trúlofunarhringurinn sem hún sýnir þarna í fyrsta sinn.
Kelly ætlar nefninlega að giftast kokkinum Matthew Mosshart sem bað hennar með pomp og prakt um áramótin en þau hafa farið leynt með trúlofun sína til þessa.
Aðdáendur hennar óskuðu henni auðvitað innilega til hamingju með áfangann og hún brást við með því að skella líka inn mynd af handsnyrtingu og naglaskrauti pabba gamla.
Þungarokkarinn gamli heldur í lúkkið sitt. Fékk sér svartar neglur með gylltum krossum, svona í stíl við gyllta hauskúpuhringinn.
Trúlofunarhringur Kellyar var hinsvegar hannaður með það í huga að hann líktist eyrnalokk sem Ozzy bar í mörg ár.
“Ég hélt fingrinum upp að eyra hans þegar ég var lítil og sagði að mig langaði í svona hring. Núna á ég hann!” sagði Kelly.
Frábær vinskapur hjá þeim feðginum og vel á minnst… við á Pjatt.is erum nú með skemmtilegan leik í gangi á Instagram. Taktu mynd af pabba þínum – taggaðu #pjattpabbi og kannski vinnur hann tvö glös af dásamlegum Armani herrailmi.
Gaman að gleðja gamla. 😉
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.