Kelly Osbourne er á batavegi eftir að hafa fengið flogakast og lognast út af við tökur á þættinum Fashion Police á sjónvarpstöðinni E!.
Kelly leit út fyrir að vera öll að koma til eftir nokkra daga rannsóknir og spítalavist, hún var í hversdagslegum klæðnaði, leðurjakka, gallabuxum og íþróttaskóm.
Læknar útskrifuðu Kelly með því skilyrði að hún myndi taka því rólega á næstunni en rannsóknir hafa ekki enn leitt í ljós hvað olli flogunum.
Kelly þakkaði starfsfólki spítalans kærlega fyrir umönnunina og sagði jafnframt að það hefði verið hugsað vel um sig á meðan á dvölinni stóð.
Sharon móðir Kelly sagði í sjónvarpsþætti nýlega að Kelly væri hressari með hverjum deginum sem liði og að Kelly væri sterk og myndi harka þetta af sér eins og henni einni væri lagið.
Mikil veikindi hafa hrjáð Osbourne fjölskylduna undanfarið en Jack bróðir Kelly greindist nýlega með MS sjúkdóminn, Sharon móðir hennar sigraðist á ristilkrabbameini og Ozzy faðir hennar greidist nýlega með sjúkdóm sem nefnist Parkin Syndrome en hann er arfgegngur og eitt einkenni hans er heyrnarleysi.
Osbourne fjölskyldan hefur staðið margt af sér á undanförnum árum og segjast verða samrýmdari með hverju áfalli sem dynur á þeim.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig