Kelly Osbourne hefur breyst mikið undanfarin ár, hún hefur grennst töluvert og er ekki eins villt og hún var.
Kelly segir að það hafi ekki verið neinn barnaleikur að missa tæp fjörtíu kíló en hún hafi náð því með aga og staðfestu. Hún segir að hún reyni að hreyfa sig eitthvað á hverjum degi og passar sig á því að hafa æfingarnar fjölbreyttar, hún hleypur, lyftir og stundar jóga.
Kelly segist einnig nota húllahring sem heitir Hoopnotica og með honum hafi hún náð að tóna handleggina sína og magaummálið hefur einnig minnkað með notkun hans.
Mataræðið skiptir líka miklu máli og Kelly segist borða mest fitandi máltíð dagsins á morgnana, ef hana langar í pítsu þann daginn þá fær hún sér pítsu um morguninn og borðar þá léttari mat yfir daginn og fær sér léttan kvöldmat.
Kelly segir að ef þú ætlar að halda þér í ræktinni í langan tíma í einu þá þýði ekkert að geyma spariæfingagallann heima. Þegar þú ert í ræktinni þá er fullt af speglum þar og þig langar ekki að kíkja í spegilinn og segja:
“Nei – oj í hverju er ég, best að drífa sig héðan út sem fyrst,” ef þú ert í æfingafötum sem gera eitthvað fyrir útlitið þá ertu sáttari með þig í ræktinni.
Að lokum segir Kelly að hún líki sér ekki við aðrar stórstjörnur á borð við J-Lo eða Angelinu Jolie. Að hennar mati er gott að líta upp til vissra einstaklinga en í lok dagsins ertu bara þú en ekki einhver önnur.
Frábær árangur hjá Kelly og hún hefur greinilega mikinn sjálfsaga enda búin að koma sér í flott form með mikilli vinnu.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig