Kelly Osbourne varð fyrir miður skemmtilegri reynslu í gær á tökustað þegar hún sat í stólnum sínum við tökur á þættinum “Fashion Police”.
Kelly hrundi niður úr stólnum sínum, fékk flog og féll í yfirlið. Hún var flutt með flýti á næsta sjúkrahús, læknarnir eru ennþá að reyna að komast að því hvað varð til þess að það leið yfir hana en Kelly spítala þar til kemur í ljós hvað olli því.
Kelly Twittaði þetta á Twitter síðunni sinni:
Takk allir fyrir fallegar kveðjur, ég fékk flog og það er verið að reyna að finna út hvers vegna.
Rétt áður en að Kelly féll úr stólnum sínum þá hafði hún kvartað yfir því að sér liði ekki vel. Kelly er nýbúin að togna á ökkla og fékk einnig stein á höfuðið sitt á hóteli sem var verið að gera upp þannig að heppnin hefur ekki beint verið með henni undanfarið.
Vonandi nær Kelly sér sem fyrst og mætir hress og kát á skjáinn aftur. Hún er svo skemmtileg og flott.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig