Breska blómarósin Keira Knightley er gengin út en hún gekk að eiga James Righton um síðastliðna helgi.
Keira var töffaraleg í stuttum Chanel kjól og jakka við en þegar hjónin gengu síðan út úr kirkjunni þá voru þau bæði með sólgleraugu og litu út eins og ástfangnir unglingar.
Athöfnin var ekki stór í sniðum en aðeins þeirra allra nánustu voru viðstaddir. Ekki nóg með það heldur giftu þau sig einnig hjá sýslumanni. Eftir athöfnina fóru þau út að borða ásamt fjölskyldum sínum og síðar um kvöldið var slegið upp heljarinnar veislu fyrir vini og vandamenn.
Parið bæði gifti sig og hélt brúðkaupsveisluna í Frakklandi og að sögn viðstaddra var þetta afar falleg og krúttleg athöfn en eftir hana var dansað fram á morgun.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig