Keira Knightley hefur gefið eiginhandaráritanir sem Britney Spears.
Fólk hefur oft haldið Keira vera aðra en hún er – m.a. Kate Winslet og Natalie Portman – og gat hún ekki setið á sér þegar aðdáandi hélt að hún væri Britney í Los Angeles.
„Það hefur gerst fyrir mig þrisvar sinnum í LA. Ég varð mjög spennt og gaf eiginhandaráritun og lét taka mynd af mér með aðdáandanum,“ sagði Keira.
En þrátt fyrir þennan rugling á Keira lítið sameiginlegt með Britney. Þar að auki þolir hún ekki að syngja fyrir framan annað fólk.
„Ég elska að syngja í sturtu eða þegar ég er dauðadrukkin en ég þoli ekki að syngja fyrir framan annað fólk, sem ég komst að þegar ég sagði já við kvikmynd og þurfti að syngja fyrir framan töluvert mikið af fólki.“
„Þegar ég var búin með lagið varð algjör þögn í herberginu og einn af framleiðendunum sagði síðan: „Þú getur klárlega ekki sungið.“ Þetta var einn versti dagurinn í mínu lífi.“
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.