Kim Kardashian og Kayne West giftu sig um síðustu helgi og var veislan af dýrari gerðinni. Það getur líka framhjáhald Kanye orðið ef hann heldur ekki „félaganum“ rólegum „innandyra“.
Kanye getur átt von á 6 milljón punda reikningi ef hann heldur framhjá Kim, samkvæmt heimildum.
Hann þarf einnig að borga auka 3 milljónir punda með hverju barni sem þau eignast í hjónabandinu freistist hann til að halda framhjá Kim.
Lögfræðingur sagði í viðtali við Daily Star að Kim fengi hinsvegar ekki krónu samkvæmt kaupmála ef hjónabandið verður jafn skammlíft og hennar síðasta hjónaband.
Það er spurning hvort við ættum ekki öll að skrifa undir svona kaupmála!?
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.