Katy Perry og Robert Pattinson eru greinilega með góðan smekk því parið, sem er nýlega byrjað að deita, sást saman á tónleikum Bjarkar síðasta laugardag.
Ekki eru nema þrjár vikur frá því Robert Pattinson hætti í annað sinn með Kirsten Stewart en eins og aðdáendur mannlífsfrétta vita hélt hún framhjá honum með Rupert Sanders, giftum leikstjóra Snow White and the Huntsman og afleiðingarnar voru erfiðar fyrir alla.
Robert hefur greinilega ekki tekist að treysta henni aftur enda sambandið búið og hann farinn að knúsa bombuna Katy Perry, örugglega alveg “Violently Happy”.
Katy hætti nýlega með söngvaranum John Mayer – og Rob fór að sjá íslendinginn knáa taka lagið í L.A en Katy kom á eigin vegum. Þau fóru líka af tónleikunum í sitthvoru lagi til að forðast ágang papparassanna en innanbúðarmenn í Hollywood segja að Robert hafi eytt heilli viku heima hjá Katy. Þau hafa þekkst í góðan tíma og verið ágætis vinir en nú hefur sambandið tekið nýja stefnu.
Rob, 27 ára, og Katy, 28 ára, eiga nú að vera að plana frí saman í Karíbahafi þar sem þau geta verið laus við forvitna áhangendur og blaðamenn. Bæði eru víst ákaflega miklir rómantíkusar svo þetta samband lofar góðu.
Katy var áður gift breska sprelligosanum Russel Brand en þau hættu saman í desember 2011 eftir rétt rúmlega árs hjónaband og endanlega var gengið frá skilnaðinum í júlí í fyrra.
Hér er upptaka frá tónleikunum sem þau fóru á…
[youtube]http://youtu.be/ojWf91zmUMk[/youtube]
Við hér á Pjattinu vonum bara að þau hafi haft gaman af tónlist Bjarkar, greinilegt að þau eru bæði svolítið menningarlega sinnuð enda Björk ekki beint í síbyljupoppinu þó Katy sé öllu nær því. Gaman að þessu.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.