Söngkonan Katy Perry lá löngum stundum í rúmi sínu þegar hún var lítil stúlka og bað til Guðs að hún fengi stærri barm!
Katy segir að þegar hún var ellefu ára gömul hafi hún legið upp í rúmi og horft á tærnar á sér. Á þeirri stundu bað hún Guð um að fá stærri brjóst, svo stór að þegar hún lægi í rúminu sínu þá sæi hún ekki tærnar. Hún virðist hafa verið bænheyrð miðað við íturvaxinn barm sinn í dag.
Að eigin sögn hefur Katy aldrei farið í neina lýtaaðgerð, ENGA, ekki á andlitinu, brjóstunum, mallanum, rassinum, núll komma núll lýtaaðgerðir takk fyrir! Hennar “lýtaaðgerð” er að hugsa vel um húðina með góðum kremum og hollu mataræði.
Katy tekur inn aragrúa af vítamínum og öðru fíneríi í töfluformi til þess að lúkka frábærlega en hvort það sé hollt fyrir kroppinn og húðina hef ég ekki hugmynd um, ætli að hún taki inn Magnesíum?
Katy er alsæl með nýja kærastanum, söngvaranum John Mayer, þessa dagana en hún vil þroskast aðeins meira áður en hún gengur að altarinu með honum.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig