Katy Perry er ekki þekkt fyrir það að vera dönnuð eða lokuð þessi elska en í viðtali við ELLE UK lætur hún ansi mikið flakka.
Katy er góð vinkona Robert Pattinson. Hún var m.a. til staðar þegar hann og Kristen Stewart hættu saman á þessu ári. Slúðurpésar og smjattarar fóru þá á stjá og sögðu að þau væru saman en Katy og Rob hafa verið vinir í mörg ár. Katy ákvað þá að taka málin í sínar eigin hendur og sendi Kristen sms skilaboð og í þeim stóð:
“Ég er að reyna að vera vinur hans í þessum erfiðleikum, það er bara óheppilegt að ég er með brjóst”.
Katy er sjálf byrjuð aftur með tónlistarmanninum John Mayer en þau höfðu hætt saman á árinu líka. Þegar hann ákvað að bakka og vera fjarlægur þá sá Katy hversu mikið henni þótti vænt um hann og vildi laga það sem var að í sambandinu því hún gat ekki hugsað sér að þau myndu missa hvort annað. Katy segir þó að hún sé ekki mikið í því að laga annað fólk eða temja það því hún sé ansi villt sjálf og kannski passa þau einmitt vel saman vegna þess!
Rihanna er í miklu uppáhaldi hjá Katy en að hennar mati er Rihanna vera með eitthvað ljós í kringum sig sem er alltaf logandi (kannski maríjúanað?-nei djók).
Rihanna sé ákveðin, fari sínar eigin leiðir og viti hvað hún vilji og það kann Katy að meta því hún er þannig sjálf. Katy var oft að reyna að bjarga “frægum” þegar þeir þurftu á því að halda en hún segist vera hætt því núna, fólk verði að átta sig á því hvað er að sjálft til að takast á við eigin vanda.
Jahá, kannski að Katy og Rihanna syngi bara saman dúett á næstunni, það yrði nú eitthvað!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig