Geldir kettir geta nú fengið sér hárkollu til að bústa upp egóið!
Kettir með blettaskalla hafi þurft að kveljast nóg af stríðni mannfólksins í gegnum aldirnar en þessu er formlega lokið… þökk sé Kittiwigs.
Hjá Kittywig er að versla hárkollur á 50$ og valið um ljósku, bleika, silfurlit eða bláa.
Og hér er vefsíðan fyrir áhugasama: http://kittywigs.com
Að klæða ketti í kollur eða fatnað er samt eitthvað svo rangt en getur verið drepfyndið líka… og hláturinn lengir lífið…þannig að þetta segir sig sjálft.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.