Katie Price ætlar í enn eina brjóstastækkunina eftir að hún eignast sitt fimmta barn.
Raunveruleikastjarnan, sem hefur farið í sex brjóstastækkanir um ævina, segist líta út eins og órangútan og ætlar því í brjóstastækkun eftir að hún eignast sitt fimmta barn – hennar annað með eiginmanninum Kieran Hayler.
„Ég lít út eins og órangútan. Ég er búinn að vera ólétt síðastliðin tvö ár,“ sagði Katie.
Þegar hún var spurð að því hvort hún ætlaði í fleiri lýtaaðgerðir, sagði hún: „Ég ætla í brjóstastækkun aftur. Brjóstin voru frábær áður en ég kynntist Kieran.“
„Þau voru bókstaflega frábær. Aldrei verið betri. En þremur mánuðum síðar er ég orðin ólétt.”
“Ég held að ég fari í aðeins minni brjóst núna og þau eiga eftir að verða stinn.“
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.