Kynbomban og glamúrfyrirsætan Katie Price er fædd árið 1978 og hefur verið tvígift en nú stefnir hún á þriðja eiginmanninn, stripparann Kieran Hayler.
Katie ætlar ekkert að fara rólega í þetta frekar en annað en eftir að hafa sett upp hringana á Bahama eyjum í síðasta mánuði á að gera mikið “show” fyrir fjölmiðla og fá fúlgur fyrir.
Og Katie ætlar vissulega að láta okkur hafa eitthvað fyrir peninginn eins og sagt er en hvorki meira né minna en 11 brúðarmeyjar eiga að fylgja henni upp að altarinu í Blighty þar sem dramað á að fara fram.
Michelle Heaton sem er besta vinkona Katie Price til margra ára mun verða meðal hinna 11 brúðarmeyja en hún hefur tvisvar áður fylgt vinkonu í höfn hjónabandsins. Fyrst með Peter Andre (2005-2009) og síðar Alex Reid (2010-2011) bardagakappa.
Börn Katie, Princess, Harvey og Junior munu jafnframt taka þátt í sýningunni með því að dreifa blómum og bera hringa.
Havaríið á að fara fram í sumar en Katie er þegar byrjuð að máta kjólana og taka sig til enda verður hvergi dregið úr glamúrnum og sýndarmennskunni.
Svo er spurning hvað hjónabandið endist lengi?
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.