Undanfarið ár hefur heldur betur verið viðburðarríkt hjá leikkonunni Katie Holmes og ekki síst eftir að hún skildi við Tom Cruise.
Katie hefur tekið þátt í leiksýningu á Broadway, nokkar kvikmyndir eru í bígerð hjá henni, hún er módel hjá Bobbi Brown og nýjasta útspil leikkonunnar er að sitja fyrir hjá skartgriparisanum H. Stern.
Myndirnar af Katie eru mjög djarfar (miðað við Katie Holmes). Leikkonan er nánast ber á ströndinni en skartgripalínan sækir innblásturinn sinn til strandarinnar og hafsins.
Katie er einnig í bikiní og liggur á ströndinni og horfir ögrandi augum á myndavélina.
Katie er vatnsgreidd og útlitið hennar er “strandalegt” svona eins og hún sé nýstigin upp úr sjónum (en bara sjúklega sæt og máluð upp á tíu).
Það er greinilegt að Katie er alsæl með lífið eftir skilnaðinn og er flottari núna en nokkru sinni fyrr!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig